02september
www.123.is/islandus
tékk it át ;)
...
16apríl
jæja lífið gengur sinn vanagang.
við 12 fætta fjölskyldan erum flutt í Grafarvoginn, öllu heldur í Vesturhúsin til hennar Elsu og fjölskyldu og búum þar í fínni íbúð á neðri hæð í 500 fm húsinu á hæðinni, með útsýni yfir alheiminn.
Það er sko búið að vera líf og fjör hér á bæ, eða um allt 72 fætur í húsinu á hæðinni !
En á eftri hæðinni búa Chihuhaha mæðgurnar Tinna og Mæja og Labba tíkin Birta Sól, sem gengur dagsdaglega undir nafninu Silvía Nótt!
Þær Tinna og Mæja eru heldur betur búnar að sanna frjósemi sína og gutu 5 hvolpaskottum hver, og hafa síðustu mánuði keppst við koma hvolpunum sem best á legg... og tekist svona rosalega vel upp.

Olli og Snær í góðum fíling í hvolpakassanum.
Silvía Nótt og Geir Ólafs ( en það er víst dulnefnið á blanco þessa dagana.. dont ask me why!?) eru ástfangin sem aldrei fyrr og geta varla slitið sig frá hvort örðu, þau hlaupa saman úti í garði inní sólsetrið á hverjukvöldi og setjast svo uppá svalirnar og horfa á sólniðurgang við snæfellið, svo ung og ástfangin =)
Nero er sko ekkert að spá í stelpum, hann finnur ástina á örðum stöðum ss. í mat og mjúku bæli, þá er hann sáttur með sitt.
haha.. hann er hrikalega einfaldur karakter þessi elska ;)
annars er það helst að frétta af afrekum þeirra bræðra að þeir skráðu sig báðir til leiks í bronzpróf DÍ og mættu þar blísperrtir á laugardaginn var.
Þeir voru báðir búnir að æfa nokkuð stíft undir prófið og voru meira að segja búnir að fullvissa mömmu sína og pabba um að þeir kynnu æfingarnar utan að, nó promblem for jhon boblem!
En þegar þeir svo mættu til leiks var það alveg stolið úr þeim hvað nú átti að fara fram.
á þessu líka fallega túni sem bar hlýðni brautina var þetta glæsilega kalda hlaðborð! frír gæsaskítur útum allt !
þeir voru sko ekki lengi að semja nýjar reglur fyrir dómnefnd og lögðu til að það yrði haldin keppni í gæsaskíttínslu í staðinn..
eitthvað gleymdist samt að segja múttu frá þessum plönum því hún arkaði brautina einsömul eins og kjáni á meðan bræðurnir reyndu hvað þeir gátu að týna eins mikinn skít og þeir mögulega gátu á sem stiðstum tíma.
dómnendin var heldur ekki með á nótunum og gaf ekki mikið útá þetta.
þeir náðu því hvorugur einkunn, en voru pakksaddir í lok dags.
saddur magi = sáttur woffi.
Þetta var góður dagur engu að síður og við stefnum á að taka þátt í næsta bronzprófi á vegum DÍ, enda virkilega vel uppsett í skemmtilegt í alla staði=)
Blanco fór í augnskoðun í sólheimakot um helgina og greindist FRÍR fyrir öllum arfgengum aunsjúkdómum!
þetta var þvílíkt spennufall fyrir okkur því að í 1 augnskoðuninni hans fyrir hálfu ári síðan var ekki víst hvort um catarakt væri að ræða eða ekki, við höfum því vonað það besta en búist við hinu versta og vorum alveg búin að afskrifa þann möguleika að hann væri í raun frír!
ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum þegar dýralæknirinn sagði að hann væri frír og spurði og spurði þangað til hún sagði "jamen det er en skide-flot hund med rene öjner!" þar hitti hún svo sannarlega naglann á höfuðið og þar sem blanco er nú með grunn-dönskuna á hreinu og skildi hvað hún sagði hefur hann ekki litið af speglinum síðan.... Mojoið má varla við meira hrósi ;)
Blanco var svo ánægður þegar hann heyrði gleðifréttirnar að hann hoppaði og skoppaði og bauð dýralækninum uppí dans =)
Þetta voru bestu fréttir sem hann gat fengið, er ekki frá því að ég hafi séð hann klemma afturfæturnar ískyggilega mikið þegar hann labbaði framhjá mér síðustu misseri... en núna liggur hann bara á bakinu og berar herlegheitin framan í mig !
þeir vita sko allir hver hefur völdin á þessu heimli ;)
það eru komin 3 ný albúm páksabað og hvolpastuð svo eitthvað sé nefnt ... enjoy =)
hilsen kolla og Blanco.. they'r still hanging...
26mars
Það má með sanni segja að páskaeggin hafi verið borðuð á hlaupum þessa páskana! Við 12-fætta fjölskyldan ákváðum nefnilega að skella okkur í smá ævintýraferð á hálendi, með dyggri aðstoð reynsluleysingjanna Davíðs og Daníels.....
.. en þeir eru hreinræktaðir eineggja borgarbörn og hafa alla tíð alið mannin í sódómu RVK .. eða borg óttans eins og margir vilja meina.
Þeir bræður eru því kanski ekki ákjósanlegustu ferðafélagarnir uppá hálendi íslands að vetri til, en hvernig getur maður sagt nei við menn sem eru með augu á við nýflengda hvolpa ;)
Það var því föngulegur hópur sem hélt á vit ævintýra íslands á föstudaginn, við skötuhjúin fórum á Snata ( mussonum okkar) ásamt tökubörnunum okkar 3... eða Nero, Blanco og Daníel ( en við eigum einungis eftir að ganga frá undirskiftum að ættleiðingapappírum fyrir hann Daníel, en honum fylgir engin ættbók).
Hillbilli (eða Davíð) og frú (Heiðdís) óku þessum líka glæsilega antik grip af gerðinni Nissan Patrol á 33" dekkjum.
Davíð var eins og ávallt með outfittið á hreinu og klæddist búning í anda 7. áratugsins, 30 ára gamlir gönguskór með rauðum reimum, snjóbuxur með kjánalega hátt mitti og axlaböndum og þraul-reynda alpahúfu, það vanntaði aðeins sænskan subtitle á hann... það hefði fullkomnað júnittið!
við ókum afstað í bongó-páska-blíðu og tókum því bara rólega, drógum hvort annað á slöngu og skíðum á leiðinni og Blanco heimtaði að fá að prófa nýja Björksi sleðann sinn og beislið.
Hann fékk sínu fram og mæðginin þutu undurljúft um sléttur hálendisins á meðan alvörukarlmenn (siggi og Davíð) reyndu bílana á komandi átök og kepptust við að festa sig og losa sig í sköflum.
Það var ólýsanlega æðislegt að þjóta í eftirdragi Blancos í sólskininu uppá fjöllum.. engir bílar nálægt, ekkert fólk... bara við 2 og sólinn og fjöllin, svo allt í einu mættum við 2 jeppum flugbjörgunarsveitarinnar með 10 óstöðuga frakka í eftirdragi á skíðum! Þeir ráku upp stór augu og spurðu hvort við værum ein á ferð... hehe.. kanski ekki alveg það sem þeir bjuggust við að mæta uppá hálendi íslands... Husky hund með nett-klikkaða-gellu hangandi á sleða í eftirdragi ;)
en þeir voru voða kurteisir og klöppuðu blanco og kollin og buðu okkur góða ferð.
Daníel sýndi hversu undurfimur hann getur verið þegar kemur að því gönguskíðum og stóð.. ótrúlegt en satt.. í fæturnar á 55 km hraða á eftir patrolnum, þvílík tilþrif hafa ekki sést í lengri tíma... og þvílkar byltur hafa heldur ekki sést í jafn langann tíma!
Davíð tók að sér að vera fórnalamb sigga á leiðinni og var dreginn á ofsahraða á slöngu þvert yfir fjalllendið, hann datt furðulega lítið af ( þar sem þeir sem þekkja sigga vita að málið er ekki endilega að halda farðþeganum öruggum á sínum stað!)
Ferðin innað Landmannalaugum gekk lýgilega vel og þegar við náðum áfangastað lá við að það væri tekið á móti Davíð og Heiðdísi með fálkaorðu, svo mikil var undrun manna!
okkur var svo tjáð að Patrolinn væri minnsti bíllinn ( minnstu dekkin) sem hefði látið sjá sig við skálann í allan vetur!
hoj fyrir því!
það má reikna með því að reynsluleysi Davíðs hafi átt stórann þátt í þessum merka áfanga.. þar sem mottóið var.. bara straujetta !
á Laugardaginn var svo haldið á nýjar reynslulausar slóðir... þ.e.a.s. gönguskíðaferð.
Við spenntum á okkur skíðin og tókum stefnulausa stefnu beinnt á toppinn! Sigga fannst samt algjör óþarfi að puða meira en nauðsinlegt var og spennti því Nero og Blanco fyrir sleðann og lét þá draga sig um fjöllin og fyrnindin. píz of keik!
Nero gólaði að vísu eins og andsetinn fyrsta 1 og 1/2 tímann af hræðslu við gönguskíðin, en hann á slæmar minnigar frá því að Blanco dróg mömmu hans á slíkum djöflaprikum fyrr í vetur og hefur grátið sig í svefn yfir þeim hörmungum síðan þá.
en nú var bara að feisa óttan, og smám saman róaðist hann nú heilmikið niður.
Hann virtist finna sig vel í beislinu og þvílíkur kraftur í þeim bræðrum..þeir drógu pabba sinn + byrgðir eða = um 95 kg upp og niður í um 5 klst. ingen promblem. þeir mundu allt sem þeir voru búnir að læra í hlaupatúrum með mömmu sinni frá því í haust og drógu sleðann eins og herforingjar útum allt.
æðisleg ferð, og allir að drepast úr harðsperrum, nema auðvitað siggi... sem stóð bara á sleðanum og skipaði fyrir.
þegar heim var komið hoppaði þreytta fólkið í laugarnar og hafði það notarlegt frammá kvöldið.
Daginn eftir var svo brunað til baka, í ágætis færi og skyggni, Hillbilli hélt svo áfram að stauja skaflana á patrol og Daníel fékk nokkra vel valdar byltur á slöngunni hjá sigga. 
Blanco fílaði fjallaloftið í tætlur og var eiginlega hálfsambandslaus alla helgina.. eða svona í sínum eigin husky-heimi. 
Við erum búin að ákveða að labba Laugarveginn í sumar, nero er að sækja um að komast á saumakúrsus hjá hússtjórnunarskólanum og ætlar að sauma sér og blanco burðartöskur fyrir komandi fjallaferðir í sumar.
hann segist búast við inngöngubréfi á næstu dögum og er virkilega spenntur....enda heimavist þarna fyrir austan á Hallormsstað! rærærærærææræææææ ;)
jæja við óskum ykkur Gleðilegra Páska... betra er seint en aldrei.
píz át... luv kolla og fjallageiturnar.
p.s. það er komið albúm af ferðinni í myndir hér til hliðar.. tékk it át !
08mars
10 Dagar eru liðnir frá aðgerð nr 2 .batinn gengur ótrúlega vel, Nero er algjör hetja.
mér til mikillar furðu svaf hann eins og enginn nóttina eftir aðgerðina, en áður fyrr hefur hann alltaf þurft að sofa uppí rúmi hjá okkur og verið ótrúega lítill í sér og þarfnast alveg sérstakrar athygglismeðferðar eftir aðgerðir... en í þetta skiptið fékk minn líka þennan fína MORFIN plástur á bakið, og það bara heyrðist ekki múkk í mínum.... meira svona aaaahhhhhh... ;)
En Nero komst sér til mikilla ama, fljótt að því að dópið er ekki eintóm sæla og því fylgdi líka þetta svakalega vandræðalega harðlífi!!!.. úpps!
Frekar neiðarlegt að þurfa að biðja múttu um að gefa sér laxerbúst í bossan á hverju kvöldi svo hann gæti nú aðeins losað um... pabbi hans vildi sem minnst vita af þessu og nero virti það algjörlega við hann, blikkað bara mömmu þegar honum var mál ;)
Nero lét sig ekki vannta á HRFI sýninguna til að styðja við skottið á blanco bróður sínum, og að sjálfsögðu hinum negra systkinum sínum ;)
hann var mættur galvaskur uppí víðidalinn, beinnt úr umbúðarskiptum og honum tókst svo heldur betur að snýkja ýmis góðgæti uppúr vösum tvífætlingana þar!
Hann settist bara pennt fyrir framan fólk og gætti þess að aðins glytti í umbúðirnar undir Levis bolnum og setti svo upp svona "ég á svo bágt" lúkkið sitt. og viti menn.. fólk bara dróg upp heilu svínseyrun og allt hvarf þetta hratt og örugglega oní Tunnuna (leininafnið hans neros... en hann veit ekki af því.. svo usssss!)
Blanco stóð sig alveg rosalega vel á sýningunni og varð 4 besti rakki tegundar, á eftir Berg bróður sínum og Eld pabba sínum.
en alls voru um 30 huskyar skráðir. Ynja systir hans varð svo 4 besta tík og á eftir henni var Aska systir. Frábæra umsagnir á allt múla-gengið.
Blanco heillaði dómarann alveg uppúr skónum og hún skirfaði mörg falleg orð um hann í dóminn, sem ég mun láta fylgja með næstu færslu.
En jæja... einhverntíman verður bleika morfín-skýjið að lenda!
svo að á þriðjudagin síðastliðinn hætti nero á dópinu, en þar sem hann var með morfin plástur var ekki hægt að drappa hann niður, hann fékk þó önnur verkjalyf til að vega á móti.
En hann var þegar langt leiddur í neislunni og upplyfði því helvíti hvers dópista.. fráhvarfseinkenni... ! honum kom ekki dúr á auga alla nóttina, ofandaði, skalf, froðufellti, vældi útí loftið og bað til búdda um að sannfæra Dagmar Völu ( dýralæknir og búddisti) um að senda sér meira dóp!
En allt kom fyrir ekki og hann varð að láta ástríkt faðmlag móður sinnar duga sér yfir erviðasta hjallann.
í dag er nero búinn að vera clean í 5 daga og stefnir á að gefa út æfisögu sína þar sem hann mun meðal annars lýsa baráttunni við bakkus. og lífið eftir bakkus.
annars er hann mjög sprækur og saumarnir líta mjög vel út, hann hlakkat til á mánudaginn, en þá ætlum við að taka saumana, í framhaldi af þvi getur hann vonandi farið að einbeita sér að BHSI æfingum, enda ekki nema seinna vænna!
nero biður að heilsa ykkur öllu, þið hafði verið ómetanlegur stuðningur í gegnum þetta allt saman =)
Luv kolla og nero - junky ... píz át ;)
Það er komið nýtt albúm tileinnkað Nero og baráttu hans við Krabban.. endilega kíkið á það.. en hafði í huga að sumt er ekki fyrir viðkvæma ;)
enjoy
28febrúar
Baráttan við krabbameinið gengur vel !
Nero er náttúrulega bara mesti snillingur sem ég þekki, hann er svo lítll í sér og mikil dramadrottning... en sammt er hann svo sterkur og harður af sér... enda búinn að "svindla" sér í gegnum lífið og ætlar sko ekki að hætta því í bráð!
Þegar Nero fæddist var hann mikið minni en systkyni sín.. algjör mús! en hann dó ekki ráðalaus, hann fékk góða hjálp frá mána ræktandanum við að komast á legg, og þegar hvolpanir voru orðnir stærri og Athena mamma þeirra var ekki að fíla það að hafa þá í eftirdagi allan daginn voru þau lokuð af frá henni með svona hvolparimla hliði af og til yfir daginn, þá sýndi nero að margur er knár þótt að hann sé smár og smeigði sér bara á milli rimlana og rölti yfir til múttu sinnar og fékk sér smá aukasopa.. svo rúllaði minn til baka útþaninn á bumbunni og lagði sig hjá systkinum sínum =)
Þessi einstaki lífsvilji virðist fylgja honum í gegnum lífið og þó svo hann sé duglegur að koma sér í "vesen" og þar með finna næg verkefni fyrir dýralæknana í vinnunni, þá er hann alltaf jafn duglegur að jafna sig.
Í gær fór Nero svo í aðgerð nr 2, varðandi æxlið.
æxlið sem við fjarlægðum fyrir viku síðan óx bara aftur á gígantískum hraða og því meigum við gera fastlega ráð fyrir því að þetta sé illkynja.
hann var því skorinn í gær og nú var ekki bara æxlið tekið heldur rákum við taugina úr æxlinu (næringaleiðina) alveg niður að rifbeinum ,þar var svo lítll nabbi sem virtist stamma af einhverskonar brjóskmyndun.
auk þess var skorið um 4 cm af holdi hringinn í kringum æxlið og taugin.
ég gleymdi nú alveg að vigta herlegheitin, en þetta fyllti allavega heilt þvagprufuglas, svo ég varð að finna eitthvað stærra ílát til að senda þetta í ræktun.
það var rosalega áhugavert að vera með í aðgerðinni, en það tók líka á. maður horfði bara niður í rifin á honum og sá lungun þenjast út rétt fyrir inna.
ég er rosalega þakklát fyrir að hafa svona góðar konur í kringum mig sem vilja allt fyrir nero minn gera, en Sif og Dagmar Vala sáu um aðgerðina.
Hann var frekar erviður í svæfingu, en við vorum með hann í gasi og á súrefni, en gasið virtist lama hann töluvert mikið svo á tímabili þurfi ég að anda fyrir hann með því að þrýsta á þyndina á honum á 20 sek fresti, svo þegar það mesta var yfirstaðið slökktum við á gasinu og leyfðum honum að anda súefninu hreinu á meðan hann var saumaður, það gekk mikið betur og hann rannkaði smá saman við sér aftur.
hann var saumaður í 3 lögum, um 40 spor í allt.
aðgerðin sjálf tók um 2 tíma og við vorum alveg búnar eftir það.
rúlluð nero með okkur inná kaffistofu og fengum okkur bita, þar vaknaði hann svo rólega á börunum udnir teppi =)
svo starði hann bara á mig með þessu stóru hvolpaaugum eins og hann væri að spyrja mig "hvað ertu búin að gera við mig?"
æji ég fékk þvílíkan bömmer þegar hann fór að rannka við sér og fann mikið til, þrátt fyrir að vera vel verkjastilltur.
hann var bara svo ósljálbjarga og máttfarinn, stóri sterki hundurinn minn!
en svo fékk hann morfin plástur og hann var fljótur að ná sér.
hann svaf mjög vel í nótt og er búinn að vera fínn í dag.
Hann er bundinn undir kviðinn og yfir bakið eins og rúllupylsa svo í morgun fórum við nero í fataskápinn hans sigga og voldum Levi´s bol handa honum, svo fór hann í bolinn og setti á sig svartann cowboy klút til að skíla morfin plástnum á hnakkanum ;)
Nero lýsir outfittinu sem ýkt hipp og kúl, og segist vera trendsetter fyrir aðra sjúklinga á spítalanum!
Dagurinn í dag gekk svo vel, Ogga frænnka hans kom færandi hendi með ný-bakað lyfranammi mjúkt og ylmandi, og minn bara alrei verið hressari en þegar hann sá oggu! hann er alveg farinn að leggja saman 2 og 2 eða ogga=nammi!
Eftir að ogga fór rann svo smám saman af honum gleðin og hann fór að finna til aftur, þá ofandar hann svo rosalega að það fer ekki framhjá nokkrum manni þegar súrefnið skyndilega tæmist úr herberginu!
þá fékk hann bara nýjan morfín plástur og meira rimadyl verkjastillandi.. og nú svífur hann á bleiku skýji ;)
en án gríns þá er hann ótrúelga duglegur kallinn og fær stanslaust klapp og knús og klór fyrir afrekið.
Blanco er líka rosa góður við hann og kyssir hann í framan annarslagið. þeir eru svo góðir bræður þessar elskur =)
en nú er það bara að láta sér batna almennilega svo maður geti farið að gera eitthvað af viti í BHSI og æfa sig í hlýðni og svona, en planið var að fara í Brozið í apríl, nú sjáum við bara til hvernig batinn gengur.
Nero biður að heilsa og segir að kveðjur séu kærkomnar á síðunni sinni ... hann stefnir svo á að pósta inn myndum af aðgerðinni í næstu viku, þegar hann finnur snúruna í tölvuna í öllu þessu drasli.. það mætti halda að það byggji ekki husky hérna á þessu heimili!.. þeir eru nú vanalegast liðtækir í tiltekt...piffff.
kv kolla og nero - hetja!
p.s. læt fylgja með mynd af nero þegar hann var lítll ungi hjá mána á kjalarnesi, sjáiði ekki baráttu glampann í augnum á honum ;)

22febrúar
Niðurstöðurnar úr ræktununni komu í dag og þær eru ekki eins góðar og ég var að vona .
Þetta er mjög sérkennilegt tilfelli og því eru niðurstöðurnar eftir því, þetta eru því bæði góðar og slæmar fréttir svona í bland.
ég læt greininguna fylgja hérna.
| Svar við rannsóknarbeiðni |
| Sendandi: | Dýralæknamiðstöðin Grafarholti |
| (Tengiliður) | |
| Heimilisfang: | Jónsgeisli 95 |
| Póstfang: | 113 Reykjavík |
| Eigandi: | Dýralæknamiðstöðin Grafarholti |
| (Tengiliður) | |
| Heimilisfang: | Jónsgeisli 95 |
| Póstfang: | 113 Reykjavík |
| Númer Keldna: | 2008020163 |
| Önnur númer: | P 08/011. " Neró" - Eigandi: Kolbrún Arna |
| Dagsetning sýnatöku: | 19.2.2008 |
| Dagsetning móttöku: | 19.2.2008 |
| Dýrategund: | Hundar |
| Tegund sýnis: | Vefjasýni |
| Fjöldi sýna: | 1 |
| Hvernig sýni: | Sjúkdómsgreining |
| Samsetning safnsýnis: | |
| |
| Rannsókn | Fjöldi | Niðurstöður | Athugasemdir |
| Vefjaskoðun - sýni | 1 | Meinafræði - Æxli. Bandvefsæxli | Svarað símleiðis 22.02.2008 |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
| | | | |
Móttekinn óreglulegur, formalínhertur, ílangur hnúður sem mældist 2.0 x 1.5 x 1.0 sm. Skurðarflötur sýndi dökka miðju. Vefjaskoðun sýndi hnúð myndaðan af bandvefsfrumum sem uxu í krossandi, þéttum búntum. Einstaka mítósur voru í frumunum. Mikið kollagen var í hnúðnum og margar æðar. Miðsvæðis var óreglulegt holrúm með blæðingum. Einnig voru vægar blæðingar í bandvefnum í jaðri holrúmsins. Hnúðurinn var nokkuð vel afmarkaður en ekki hjúpður. Í einum enda hnúðsins uxu bandvefsfrumurnar inn í rákóttan vöðva. Æxlið náði út að skurðarköntum. Niðurstaða: Bandvefsæxli með íferðarvexti Hugsanlega er um hnúðótta fellsbólgu (nodular fasciitis) að ræða sem er góðkynja bandvefshnúðabólga. Mismunagreining er helst trefjasarkmein (fibrosarcoma) sem er illkynja, einkennist af íferðarvexti (infiltrative growth), en dreifir sér sjaldan. Ég vísa til samtals 22. febrúar.
|
| Afrit: | Keldum, 22.2.2008 |
| | Olof Gudrun Sigurdardottir |
þannig að nú er bara að bíða og sjá. æxlið var fast þétt inní vöðvanum á honum.. okkur tókst að fjarlægja allt æxlið sjálft en það var taug úr því lengst niður í vöðva, sem við vildum ekki kurkka meira í ef þetta væri nú góðkynja, þá væri svosem engin ástæða til að leggja meira á hann en við þegar gerðum.
þannig að nú er bara að bíða og sjá!
Ef æxlið kemur ekki aftur og ástandið helst óbreytt, þá erum við að tala um góðkynja bandvefshnúðabólgu, gott og blessað með það.
En ef æxlið fer að myndast aftur útfrá tauginni þá erum við að tala um illkynja vöxt, mjög sennnilega þá staðbundið krabbamein.
því þessi tegund er ekki þekkt fyrir að dreifa sér mikið.
þannig að það eru svosem góðufréttirnar í slæmu féttunum... ef æxlið kemur aftur þá skerum við það bara aftur burt.. for good, þurfum þá að taka allgóðann bút úr vöðvanum á honum til að fjarlægja meinið alveg.
svo eru það aftur slæmar fréttir, en þær eru að nero er þegar kominn með þó nokkuð mikla sérkennilega bólgu við skurðinn.
það eru samt bara 3 dagar síðan hann var skorinn, en æxlið óx jú á gígantískum hraða síðast!
en ég er að vona að þetta séu bara reaction við saumunum.. hann var viðkvæmur fyrir saumunum eftir geldinguna og fékk þá bólgur ( bara ekki eins mikklar).
svo nú er bara að halda áfram að þreifa á honum á hverjum degi og fylgjast grannt með því hvernig þetta þróast.
ég vona svo innilega að þetta séu bara bólgur við sauminn, en ekki ný æxlismyndun.
krabbamein er bara svo hræðilegur sjúkdómur að maður vill ekki hugsa útí það.
Ég get sagt ykkur það að ég var töluvert sleginn þegar ég fékk símtalið frá keldum í morgun, maður er eitthvað alltaf svo bjartsýnn að ég hafði ekki einusinni velt þessum möguleika fyrir mér!
en þá er líka gott að eiga svona góðan vin eins og Nero minn, hann er yndislegasti hundur sem ég hef kynnst, hann er svo næmur að hann huggar mann og kemur manni í gott skap þegar maður er down.
ég eyddi kaffitímanu í dag með honum inní eldhúsi, sat og knúsaði hann og klappaði og hann skildi mig svo vel, kyssti mig og lá hjá mér og malaði við mig.... hann er bara svo æðislegur þessi elska og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa honum.
Nero sannar fyrir mér á hverjum degi máltakið góða.. besti vinur mannsins !
luv kolla og nero baunapúki ;)
19febrúar
Nero fór í brjósta aðgerði í dag.
æji honum leið bara aldrei vel í bikini fyrir framan hinar stelpurnar ....
hehe nene, en Nero fór samt sem áður í aðgerð á brjósinu í dag! málið var að fyrir c.a. 2 vikum tek ég eftir hnúði við eftu geirvörtuna á honum, vinstra megin á kassanum.
við mældum þetta og þukluðum í bak og fyrir á hverjum degi síðastliðnar 2 vikur ( nero farinn að fara þvílíkt hjá sér, bara að koma í vinnunna.. alltaf verið að káfa á greyjinu !) og niðurstaðan var sú að þetta væri eitthvað stórfurðulegt sem væri best að taka og láta greina.
afhverju ekki að nota tæknina þegar maður hefur hana?
þetta varð á stærð við vínber á tímabili, grjóthart lengst í vöðvanum á honum og svo minnkaði það örlítið aftur. gátum ekki stungið á þetta svo við ákváðum bara að kíkja á herlegheitin!
Nero greijið er soddan ljúflingur og prinsessa í vinnunni, liggur alltaf á stórri þykkri dýnu í svítunni sinni og skælir og knúsar alla sjúklingana sem hann hittir. honum finnst fátt betra en að kúra.. kanski borða... en hann getur borðað endalaust og kúrað endalaust. svo fyrir aðgerðina splæstum við í glænýtt ofurmjúkt prinsessubæli handa honum.

það er alveg eins og þetta bláa fyrir ofan =)
hann var svo alsæll með nýja bælið sitt að hann er búinn að liggja á því í allan dag =) nú er sófadýrið loksins komið með sinn eiginn sófa! þetta er svo girnilegt bæli að ég er sjálf búin að stelast til að liggja í því ;)
Nero og bælið eru farin að bonda og strax í gær sást ástarblik í augunum á nero þegar hann leit bælið sitt heittelskaða augum eftir dagsfjarveru!
við komum heim í gærkvöldi og bælið var lokað inní stóra stóra risa rimlabúrinu hans þar sem hann sefur, nero hugsar vanalegast um mat nr 1, 2 og 3 þegar hann kemur heim, en í gærkvöldi spændi hann úr dyrunum beinnt að búrinu sínu og sat g vældi og skældi fyrir framan það eins og andsetinn.... þegar það dugði ekki til tók hann plan B á þetta og lagðist niður í gólfið á bakið og spíklaði og lét eins og bavíani í frekjukasti í bananabúð!
þá loksins fór siggi og opnaði búrið og minn var sko ekki lengi að hoppa inní búr og oná bælið sitt heittelskaða og knúsa það.
en aðgerðin gekk vel, æxlið var á stærð við nýrnabaun þegar það var komið út, kanski var þetta rétt sem Dunna sagði, nero er prinsessan á bauninni og þetta er bara baunin ;)
en æxlið var á kaf oní vöðvanum á honum svo við klipptum það frá, hann var svo saumaður í 2 lögum og sif snillingur saumaði hann svo flott að eftir nokkra mánuði þegar hárin verða gróin yfir sárið mun enginn vita að hann fór í brjóstaaðgerð ;)
dagmar var svo sæt að skutlast með æxlið beina leið á keldur fyrir mig, svo nú er bara að bíða og sjá hvað þær seigja þar.
fæ vonandi svar í næstu viku!
Þegar dagurinn var búinn og við vorum að setja hundana inní jeppan, setti siggi bælið hans nero við hliðina á búrinu hans blancos aftur í, blanco var ekki lengi að nýta tækifærið til að stríða stóra bróður og hoppaði beinaleið uppí bælið og lagðist niður,
og hvað haldið að nero hafi sagt við þessu ?
hann horfði á pabba sinn eins og hann hefði aldrei gert verri mistök á lífsleiðinni, setti upp mestu hvolpaaugu í heimi og VÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆLLLLLLLL og OOOOOORRRRRG .. við dóum úr hlátri.. litla prinsessan og bælið hans, þvílík ást að ekki er hægt að deila með bróður! við settum þá blanco í búrið og um leið og hann var komin af bælinu gerðist kraftaverk!
nero stökk jafnfætis uppí jeppan og sat sem fastast á bælinu sínu! hann hefur aldrei hoppað sjálfur uppí skottið.. ekki einusinni á eftir skinkubita.. svo jú þetta er sönn ást!
jæja nú er bara að bíða og sjá hvað kemur útúr ræktununni, vonandi bara eitthvað tilfallandi góðkyja á ferð.
luv kolla og prinsessan á bauninni !
14febrúar
í kjölfar umræðu á husky-spjallinu góða skaut upp í huga mér sagan af Nero og Svampi Sveins !
þannig var að þegar nero var lítíð gerpi var hann sísvangur .. það hefur nú svosem ekkert elst af honum, en í dag hefur hann lært að hemja sig og beina trantinum að því sem er meira líklegt til að vera ætilegt en ekki. ( þó svo að eitt og eitt skóhorn renni lauflétt oní hann annrslagið ... en þau ilma líka svo vel !) .
Nero hefur alltaf verið mikil prímadonna og frekar glysgjarn.. þannig útskýri ég allavega hvernig eyrnalokkarnir mínir enduðu í nr 2!
þegar við sóttum hann á flugvöllinn á egs.. 3ja mánaða 5 kílóa patta, miseygðan og kjánalegan bráðunum við alveg.. ohhh hann er svo sætur
svo fórum við happy couple í kaupfélagið og keyptum lítinn sætann apa handa litla sæta hvolpinum okkar og skírðum hann Herra Niels.
svo settum við Nero og Herra Niels afturí bílinn og keyrðum á djúpavog. þegar við fórum svo afturí til að ná í litla sæta Nero og Herra Niels brá okkur heldur betur!..
Herra Niels var andlitslaus með meiru og lamaður fyrir neðan mitti! og inniflin lágu eins og bómulstægjur vítt og breytt um skottið!
jesús minn.. hvað er þetta eiginlega
ég viðurkenni það að ég svaf ekki fast með þennan litla Turminator við hliðina á mér þá nóttina ....hehe..
jæja dagar liðu og Nero aðlagaðist vel hjá okkur, þó svo að einstaka sokkar hurfu og handklæðin áttu það til að rifna svolítið af sjálfu sér ?
svo förum við Nero út að labba einn daginn og litli kúturinn sest niður í nr 2 stellingu og byrjar að gera sig reddí! en þá gerist það mér til mikillar undrunnar að það bókstaflega hrinur úr honum eins og spilakassi.. beiglaður kóktappi, 3 steinar, bútur úr handklæði, og hálf skóreym!... og ekkert með.. engar umbúiðr.. bara glyngrið úr spilakassanum lá þarna á túninu!
mér fannst þetta svo skemmtilega skondin upplifun að ég ákvaða taka ekki glyngrið hans upp heldur skilja það eftir þarna í hrúgu.. og enn þann dag í dag ef ég labba þessa leið á djúpavogi kíki ég á fjársjóðinn
Svo var það nokkru seinna þega nero var um 5 mánaða gamall að okkur til mikilla skelfinga leggst hann á hliðina með útþaninn magann og emjar og emjar! við hringdum í alla heimsins dýralækna og kom þeim öllum saman um að hann væri með bloat! senst að maginn hefði snúist við í honum og hann myndi deyja ef hann kæmist ekki undir hnífinn innan nokkra klukkutíma!
mín uppí bíl og brunaði af stað til akureyrar með litla gerpið afturí.. hann róaðist þá allur á leiðinni og ég ákvað að stoppa uppá mirði heiði og ath hvort hann þyrfti að tissa eller
púppa... og viti menn.. aftur fór minn í stellinguna og reyndi eins og hann gat, ég stóð álengda og gerði eins og allar góðar mömmur, hvatti hann áfram og stappaði í honum stálinu.
og allt í einu PLOPP !!!! skaust ekki Svampur Sveinsson tandurheinn útum bossann á honum !
ég trúði ekki mínum eigin augu.. hvolpakjáninn hafði tekist að kyngja risa munnbita af dýnusvampi og melta hann! svona tandurheinn og alles. þarna var Svampur Sveins mættur í allri sinni dýrð!
allt er gott sem endar vel =)
Nero hefur síðan þá reynt eins og athygglin leyfir að einbeita sér að auðmeltanlegri hlutum, ss. eyrnalokkum og skóhornum... honum lærist frekar seinnt.. eins og dómarinn í skapgerðamatinu sagði " He´s a bit late dog you know.. allso mentaly!"
læt þetta vera lokaorðin í þessari færslu ásamt mynd af ástkærum vini neros ;)
....koma svo kvitta á etta, annars hóta ég verkfalli ;) haha...
12febrúar
Blanco fékk í gær bréf sent frá USA... ég var nú ekki lengi að rífa það af honum og opna það.. gætu verið kærustupóstur eða eitthver sori í þessu!
en mér til mikilla léttis var þetta nú ekki kærustubréf heldur niðurstöðurnar úr ofnæmisprófinu hans.
En Blanco gekk nýlega í gegnum mikil veikindi, fyrir jól hætti hann allt í einu og þola matinn sinn, niðurgangur og niðurgangur út í gegn, hann létist um 4 kíló 
ég prófaði í samráði við hann öll heimsins ráð við niðurgangi en ekkert gekk, nema kjúklinugur!
þið getið ýmindað ykkur glottið á mínum þegar mamma hans komst að þvíað það eina sem fór vel í mallakútinn voru kjúklinabryngur!!
ég var nú ekki par sátt við það að blæða í kjúklinabryngur í hvert mál, þar sem ég tími varla að kaupa þær oní sjálfan mig!
og snéri vörn í sókn og plataði hann með nammi uppá borð í vinnunni og tróð í hann nál og tappaði af honum einu glasi af blóði, svo var það spunnið og sermið sent til landsins þar sem menn vita allt. USA.
niðurstöðurnar eru þær að hann þarf að hætta að reykja, hann er með ofnæmi fyrir sígerettureik !.. ég var búin að segja honum þetta um leið og hann byrjaði að fikta að hann kæmist aldrei upp með þetta, fyrr eða síðar myndi heilsan grípa inní. en hann hlustaði ekki á mig!
hehe.. nene en hann greindist í alvöru með ofnæmi fyrir sígerettureik, sem er svosem allt í lagi þar sem hann hefur aldrei á sinni ævi verið í kringum reykingafólk ;)
svo er hann með ofnæmi fyrir nautakjöti, mais ( sem er einmitt uppflyllingarefni í mörg fóður) höfrum, baunum, nettlum, ask og brómberjum.
svo að núna erum við loksins komin með fóður sem henntar lita mallakútnum svo hann geti nú farið að stækka vel og orðið flottur eins og Eldur pabbi sinn , en hann er Idolið hans Blancos.

þett er mynd af eld og blanco í sumar... ussss hann er bara flottur sá "gamli"
svo ein mynd af feðgunum að Chilla saman Eldur, Berg og Blanco.

jæja.. besta að fara að draga nautslærið útúr kjammanum á blanco og drepa í sígarettunnni sem hann er með í annari ;)
luv kolla og blanco - með nicotinplásur....
09febrúar
nero og blanco voru náttúrulega heimsins mestu hvolpakrútt!
ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er 100% hlutdræg þar sem ég hef óbilandi álit á öllu sem er mitt en common hver stenst þessi smétti?


eins og þið sjáið algjörar krúttbollur =)
þetta voru góðir tímar, en í dag þegar maður er búin að gera svo margt með þeim myndi maður aldrei vilja fara aftur í tímann, þeir eru bara bestu vinir manns og frábærir eins og þeir eru í dag! gæti ekki verið sáttari með uppeldið á þeim .
fólk spyr mig oft hvort að þeim semji ekki illa saman, 2 svona stórir og öflugir hunda, hvort að það gangi nokkuð upp!
en sannleikurinn er sá að þeir eru bara bestu vinir! .. eiginlega aðeins of miklir vinir.. if you know what I mean!... þeir liggja heilu kvöldin og kúra saman og kyssast og knúsast útí eitt.. " bit too gay sometimes " hehe
þá veltir maður því oft fyrir sér.. hverslags afkvæmi gæti þetta samband borið af sér ?
forvitnin rak mig útí vittleisuna og góður félagi minn hann www.google.com sýndi mér niðurstöðuna, og hún er þessi ...
.....

ég er að spá í að skíra hann nernco islandus ;)
þá er þeirri forvitni vikunnar svalað á farsælan hátt !
hvernig lýst ykkur annars á hann nernco minn ?
luv kolla og nernco islandus..